Sundlaugar eru stór hluti af íslenskri menningu. Að stinga sér í sund er á lista UNESCO yfir menningararfi. Sundlaugar eru staðir til að slaka á, hittast og upplifa landið á annan hátt, bæði í borg og byggð.
Ofaní hjálpar þér að skrá sundlaugar sem þú heimsækir, finna nýjar og fylgjast með ferðalagi þínu um sundlaugamenningu Íslands.
Safnaðu laugum, skráðu þær og hversu mikið af landinu þú hefur upplifað í gegnum sund.
Skráðu og safnaðu sundlaugum
- Merktu við sundlaugar sem þú hefur heimsótt
- Haltu utan um persónulegan sundferil
- Sjáðu allar laugar sem þú átt eftir
Uppgötvaðu nýja staði
- Leitaðu af sundlaugum á Íslandi
- Síaðu eftir staðsetningu og eiginleikum
- Finndu laugar sem passa við næstu ferð
Deildu upplifuninni
- Fylgstu með vinum og sjáðu hvaða laugar þau heimsækja
- Skoðaðu hvernig þið berist saman á stigatöflunni
- Kláraðu að fara í allar laugarnar fyrst í vinahópnum
Hvort sem markmiðið er að heimsækja allar sundlaugar landsins, finna nýja uppáhaldsstaði eða einfaldlega muna hvar þú hefur verið, þá er Ofaní félagi þinn í sundferðum um Ísland.