Item
¥0CNY
Screenshots come from the App Store listing. They are shown at full aspect ratio, never cropped. Click to enlarge.
From the App Store SourceDulur Krakkar er safn 64 leikja fyrir börn frá leikskólaaldri og upp á unglingsár. Leikirnir eru fyrst og fremst skemmtilegir, og í leiðinni æfa börnin lestur, stafsetningu, stærðfræði, rökhugsun og fjármálalæsi. LEIKIR FYRIR ÖLL ALDURSSTIG • Leikskóli (3–5 ára): dýr, litir og form, talning, skuggaleikur, stærra eða minna og formaþrautir • Yngsta stig (6–8 ára): stafir og orð, rím, atkvæði, lestrarsögur, samlagning og frádráttur, mynstur og rökþrautir • Miðstig (9–12 ára): klukkan, margföldun, brot, fánar, heimsálfur, sólkerfið, málfræði, stafsetning og forritun • Lífsleikni (10–15 ára): laun og launaseðlar, skattar, sparnaður, lán og vextir, fyrsta íbúðin, neytendaréttur, netsvindl, skyndihjálp og tilfinningar NÝTT: BEKKIR OG KENNARAR Kennari býr til bekk og gefur nemendum kóða. Nemendur ganga í bekkinn með kóðanum, velja sér gælunafn og dýr og safna stjörnum fyrir bekkinn, hvort sem þau spila í appinu eða á vefnum. Í Keppnisstund keppir allur bekkurinn saman í spurningakeppni í rauntíma. Kennarar skrá sig inn í appinu og hafa aðgang að öllu kennarasvæðinu: yfirliti yfir bekkinn, stigatöflu og liðum, Fjörkassanum, sýningarham fyrir skjávarpa, Keppnisstund og Leikjasmiðjunni, þar sem kennarar búa til eigin leiki úr námsefninu. ÖRUGGT FYRIR BÖRN • Engar auglýsingar og engin kaup í forriti • Börn þurfa hvorki netfang né lykilorð • Í bekk nota börn gælunafn og þurfa ekki að gefa upp raunverulegt nafn • Stillingar, innskráning kennara og allir tenglar út úr appinu eru á bak við spurningu fyrir fullorðna Appið er í boði á íslensku, ensku, dönsku, norsku og sænsku. Persónuvernd: https://www.dulur.is/krakkar/personuvernd
The developer is Eydis Agustsdottir, and the app identifier is is.dulur.krakkar.
It was first released on 2026-09-23, according to our own database record.
Every number in these answers comes from the data shown above on this page.